31.12.2009
Þeir sem vilja regnboga verða að þola regnið
Dollý spáir í árið 2010
Eins og venjulega heilsaði hún mér drottningin og hló að mér um leið, eða svo fannst mér því Dollý var svo ákaflega glöð að sjá mig að hún skellti uppúr og sló sér á lær. Greinilegt var að hún hafði fengið sér einn eða tvo „sterka " kaffibolla áður en ég kom og það var létt yfir henni. „Gakktu í bæinn elskan mín, komdu inn úr kuldanum. Meira hvað boli ætlar að bíta í okkur um þessi áramót," sagði hún. „Annars er það bara ágætt að hafa svona kalt, þá hefur maður afsökun fyrir því að vera ekkert að þvælast úti. Mér leiðist þessi kuldi og vildi helst vera bara á Kanarí með hinu gamla fólkinu, orna mér þar við sólaryl og kíkja kannski á strákana á nektarströndinni." Hér skellti Dollý uppúr, varð dálítið dreymin í framan og hafði augljóslega einhverja ákveðna mynd í huga sér.
Lesa meira...
27.5.2009
Óskastundin
Alda og Ásta deildu verðlaunum
Í fyrsta sinn í manna minnum varð jafntefli í Óskastundinni. Það voru lögin Hallelujah og Tölum saman sem slógu í gegn og hlutu hvort um sig einkuninna 8,9.
Lesa meira...
18.3.2009
Ótrúlega flott veisla - Veislan heim
Um daginn hittumst við sjö samstarfskonur heima hjá einni okkar og gerðum okkur glaðan dag. Tilefnið var ekkert sérstakt en við höfum hist utan vinnu með afar óreglulegu millibili undanfarin ár. Oftast höfum við hist á veitingahúsi en í þetta sinn ákváðum við að prufa þjónustu frá nýstofnuðu fyrirtæki sem nefnist http://www.lystauki.is/.
Lesa meira...
16.3.2009
Nafnabók frá Laugalandsskóla
Systursonur minn, Þorgrímur Gunnar Eiríksson, sýndi mér í dag nokkrar bækur sem hann hlaut í arf eftir afa sinn. Ein bókanna er handrituð og viðkvæm, einskonar minningarbók, nemenda í Laugalandsskóla veturinn 1940-1941. Nemandinn var Kristrún Snæbjörnsdóttir og í bókinni eru margar kærar kveðjur henni til handa. Mig langar að deila með ykkur nokkrum þeirra.
Lesa meira...
7.3.2009
Sameinum gegn fordómum
Unite Against Racism
Dagana 3. og 4. mars sl. átti ég þess kost að sækja 3. ráðstefnu Evrópska knattspyrnusambandsins og fleiri aðila um kynþáttafordóma, Unite Against Racism, sem haldin var í Varsjá í Póllandi. Var ráðstefnan ákaflega fróðleg en þó við hér á Íslandi teljum okkur ágætlega sett varðandi fordóma af ýmsu tagi þá megum við ekki sofna á verðinum og því er ráðstefna sem þessi þörf og gagnleg fyrir knattspyrnuforystuna.
Lesa meira...
19.2.2009
Kópavogur bærinn minn
Kópavogsbær er minn heimabær, hér er ég alin upp, hér hef ég búið allt mitt líf að undanskildum tveimur vetrum sem ég dvaldi í Stykkishólmi og þessi bær er mér kærastur allra bæja í heimi hér. Hér er gott mannlíf, hér býr fjöldinn allur af góðu fólki og mér finnst bæjarstæðið eitt það fallegasta á landinu.
Lesa meira...
7.2.2009
Allir vildu Lilju kveðið hafa
Það væri fyndið að lesa fréttir af Alþingi í vikunni, og það verður sjálfsagt fyndið í framtíðinni, en í dag er ástandið þannig að maður er algjörlega forviða á því að kjörnir þingmenn skuli eyða dýrmætum tíma sínum og þjóðarinnar í marklaust þrátt um það hver samdi hvaða frumvarp og hver ekki!
Lesa meira...
29.1.2009
Bloggheimar munu sjálfsagt loga
Rétt eins og bróðurpartur þjóðarinnar hef ég beðið undanfarna daga, spennt yfir því hvernig ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna muni líta út. Mér heyrist á fréttum og samferðarfólki að almenn ánægja sé með að Jóhanna Sigurðardóttir taki við embætti forsætisráðherra. Hún er einn staðfastasti stjórnmálamaður Íslands, fylgin sér, ákveðin, dugleg, kraftmikil og það sem mestu skiptir, hún hefur næma sýn á velferð þeirra sem minnst mega sín.
Lesa meira...
21.1.2009
Atburðir dagsins
Nú er úr vöndu að ráða. Síðasti sólarhringur hefur verið viðburðarríkur í meira lagi. Mótmæli fyrir framan Alþingishúsið náðu nýjum hæðum í gær og í dag var þeim fram haldið, fyrst fyrir framan Stjórnarráðið og nú þegar þetta er ritað standa yfir mótmæli fyrir framan Alþingishúsið.
Lesa meira...
18.1.2009
Nýr formaður
Þá hafa framsóknarmenn kosið sér nýjan formann. Sigmundi Davíð sendi ég hamingjuóskir og óska honum velfarnaðar í sínu starfi. Það er hins vegar ljóst að það eru engir sérstakir hveitibrauðsdagar framundan hjá nýjum formanni. Þó framsóknarmenn hafi látið í það skína að þeir séu flokkur breytinga og þar með valkostur fyrir hundóánægða íslenska þjóð þá er það hverjum manni ljóst að flokkur sem afneitar fortíð sinni getur ekki átt sér bjarta framtíð. Sagði ekki fyrrverandi formaður flokksins á flokksþinginu að flokkurinn ætti nokkra aðkomu að hruni bankakerfisins. Merkilegt að það skuli koma frá þeim ráðherra sem seldi bankana og bjó til regluverkið í kringum þá.
Lesa meira...
12.1.2009
Fésbók
Undanfarna daga hefur mikið verið fjallað um Fésbókina (Facebook). Atriðið í áramótaskaupinu var bráðfyndið og kannski eins og sumir upplifa Fésbókina. Fyrir nokkrum mánuðum datt ég inn í þetta og hef nú sankað að mér fullt af fólki sem ég þekkti hér einu sinni eða hitti á einhverjum tímapunkti í lífi mínu. Í gær fann ég t.d. frændfólk mitt í Ástralíu sem ég sá síðast fyrir nokkrum árum.
Lesa meira...
5.1.2009
Heimsmálin
Ofbeldi er aldrei réttlætanlegt
Um það leyti sem íslenska efnahagsundrið riðaði til falls varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fara í nokkurra daga ferð til Ísrael. Lengst af dvaldi ég í hafnarborginni Haifa í norðurhluta landsins en einnig átti ég þess kost að fara í skoðunarferð til Nazareth og Galileu vatns.Skemmst er frá því að segja að landið heillaði mig mjög og er ég staðráðin í að gera mér aðra ferð til Ísrael ef þess er nokkur kostur.
Lesa meira...
2.1.2009
Sjónvarpsdagskráin
Áramótaskaupið
Einn er sá sjónvarpsþáttur sem langflestir, ef ekki allir, landsmenn horfa á. Það er áramótaskaupið. Undir lok hvers árs byrja vangaveltur um hvernig skaupið muni verða og á gamlárskvöld fáum við svarið. Auðvitað sýnist sitt hverjum um skaupið. Bestu skaupin voru að mínu viti uppúr 1980 þegar Flosi, Edda Björgvins og Gísli Rúnar stýrðu skaupinu.
Lesa meira...
1.1.2009
Gleðilegt nýtt ár
Kæru vinir ég óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir ánægjulegar samverustundir á síðasta ári. Farið vel með ykkur á árinu, hugsum hátt en lifum í hógværð. Áfram Ísland.
31.12.2008
Áramót
Árið verður erfitt en það þarf ekki dulræna hæfileika til að sjá það fyrir
- segir Dollý dulræna í áramótaspá sinni
Það var með hálfum huga sem ég lagði af stað til Dollýar vinkonu minnar, nú í lok desember, enda hafði viðskilnaður okkar síðast ekki verið eins og ég hefði kosið. Allt árið hef ég ætlað að hringja í hana og athuga hvort henni hafi orðið meint af svefninum á gólfinu en það eru sjálfsagt margir sem kannast við að árið er liðið áður en maður nær að snúa sér í hring. Áramót eru framundan og enn legg ég í hann til vinkonu minnar, til að fá hana til að spá fyrir um framtíðina.
Lesa meira...
30.12.2008
Áramótaspáin
Dollý tilbúin til birtingar
- ótrúleg spenna fyrir spá Dollýar dulrænu
Síminn hefur hreinlega ekki stoppað hjá mér undanfarna daga en margir bíða spenntir eftir spá Dollýar dulrænu fyrir árið 2009. Dollý var ótrúlega sannspá í spá sinni fyrir árið 2008 þar sem hún spáði afar erfiðu ári fyrir bankamenn, gagnrýni á seðlabankastjóra, væringum í borgarstjórn Reykjavíkur og því að landsliðið kæmist í úrslitakeppnina.
Lesa meira...
29.12.2008
Ný vefsíða www.ingibjorg.net
vistuð og hönnuð af Aicon
Á morgun, þriðjudaginn 30. desember, verður ný vefsíða www.ingibjorg.net formlega tekin í gagnið. Er það fyrirtækið Aicon sem heldur utan um síðuna og er hún unnin í vefritli sem heitir Aicon CMS Lite.
Lesa meira...
9.12.2008
Niðurstaða fengin
Það þýðir svo sem ekki að svekkja sig á því til langframa. Enn er einn leikur eftir, gegn Fram, og þar þýðir ekkert annað en að hala inn 3 stig.
Lesa meira...

Um Ingibjörgu

  
   Ingibjörg Hinriksdóttir
   Sjá meira




 


Ingibjörg Hinriksdóttir | ingibjhin@hotmail.com