Dollý dulræna, er Dulfríður Jósefína Hansdóttir, fyrrum fiskverkakona frá Vestfjörðum. Hún segir sjálf að hún hafi fyrir mistök flust suður á mölina en mig grunar að hún hafi skyndilega sofnað um borð í togara þegar hún var að sinna þar mikilvægum erindum.

Dollý er ákaflega ljúf kona á óræðum aldri, dálítið hrjúf við fyrstu kynni en algjört ljúfmenni innvið bein. Hún segir hlutina hreint út og kemur til dyranna eins og hún er klædd, í bókstaflegri merkingu.

Dollý dulræna spáir fyrir um komandi ár og á það jafnvel til að troða uppi á árshátíðum, þorrablótum og jólatrésskemmtunum með gamanvísur og söngva.

Spá Dollýar fyrir árið 2010
Eins og venjulega heilsaði hún mér drottningin og hló að mér um leið, eða svo fannst mér því Dollý var svo ákaflega glöð að sjá mig að hún skellti uppúr og sló sér á lær. Greinilegt var að hún hafði fengið sér einn eða tvo „sterka " kaffibolla áður en ég kom og það var létt yfir henni. „Gakktu í bæinn elskan mín, komdu inn úr kuldanum. Meira hvað boli ætlar að bíta í okkur um þessi áramót," sagði hún. „Annars er það bara ágætt að hafa svona kalt, þá hefur maður afsökun fyrir því að vera ekkert að þvælast úti. Mér leiðist þessi kuldi og vildi helst vera bara á Kanarí með hinu gamla fólkinu, orna mér þar við sólaryl og kíkja kannski á strákana á nektarströndinni."

Áramótaspá Dollýar 2010.
Áramótaspá Dollýar 2009
.
Áramótaspá Dollýar 2008.
Áramótaspá Dollýar 2007.

Um Ingibjörgu

  
   Ingibjörg Hinriksdóttir
   Sjá meira




 


Ingibjörg Hinriksdóttir | ingibjhin@hotmail.com