Það væri fyndið að lesa fréttir af Alþingi í vikunni, og það verður sjálfsagt fyndið í framtíðinni, en í dag er ástandið þannig að maður er algjörlega forviða á því að kjörnir þingmenn skuli eyða dýrmætum tíma sínum og þjóðarinnar í marklaust þrátt um það hver samdi hvaða frumvarp og hver ekki! Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra lagði t.d. fram frumvarp til laga um greiðsluaðlögun, frumvarp sem lengi hefur verið beðið eftir. Nú bregður svo við að íhaldsflokkurinn og bændaflokkurinn fyrrverandi leggja fram frumvarp um sama efni á þingi í dag. Ef eitthvað er að marka íhaldsmenn þá er frumvarp þeirra og frumvarp dómsmálaráðherra nánast eins. Ef svo er, af hverju þurftu þeir að leggja fram annað frumvarp? Af hverju studdu íhaldsmenn ekki bara frumvarp Rögnu ef það var "nánast" eins og þeirra frumvarp? Af hverju þarf að eyða tíma Alþingis í það að þrátta um hver gerði hvað hvenær, hvers vegna og hvernig?
Reyndar verð ég að segja það bændaflokknum til hróss að þeirra þingmaður sem lagði frumvarpið fram hitti sennilega naglann á höfuðið þegar hann sagði að "ræður sjálfstæðismanna um frumvarpið virtust vera keppni um það hver pissaði lengst og hver hefði ljósritað hraðast. Hins vegar væri ljóst, að í þeirri keppni hefðu framsóknarmenn vinninginn því þeirra frumvarp hafi komið fram fyrst á Alþingi."