|
18.1.2009
Nýr formaður
Þá hafa framsóknarmenn kosið sér nýjan formann. Sigmundi Davíð sendi ég hamingjuóskir og óska honum velfarnaðar í sínu starfi. Það er hins vegar ljóst að það eru engir sérstakir hveitibrauðsdagar framundan hjá nýjum formanni. Þó framsóknarmenn hafi látið í það skína að þeir séu flokkur breytinga og þar með valkostur fyrir hundóánægða íslenska þjóð þá er það hverjum manni ljóst að flokkur sem afneitar fortíð sinni getur ekki átt sér bjarta framtíð. Sagði ekki fyrrverandi formaður flokksins á flokksþinginu að flokkurinn ætti nokkra aðkomu að hruni bankakerfisins. Merkilegt að það skuli koma frá þeim ráðherra sem seldi bankana og bjó til regluverkið í kringum þá. Það er hins vegar vonarglæta í myrkrinu. Flokksmenn harðneituðu og beinlínis afneituðu þeim sem hafa talið sig meðal flokkseigenda til þessa tíma þegar þeir settu Pál Magnússon í þriðja sæti í fyrstu kosningunum. Það kemur hins vegar á óvart að Sigmundur hafi unnið Höskuld, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að framsóknarmenn hafa áður kosið sér formann sem ekki er þingmaður og ekki fór það nú vel! Ég spái því að það verði eftirmálar af þessu flokksþingi, bæði vegna samþykktar þeirra um að ganga til aðildarviðræða við Evrópusambandið og vegna þess að "rangur" formaður var kosinn. Minni ég í þessu sambandi á uppákomuna í Reykjavík þegar ásakanir gengu um að smölun hefði átt sér stað en það jafnframt tekið fram að þar voru ekki stuðningsmenn Páls Magnússonar á ferð. Það skyldu þó aldrei hafa verið stuðningsmenn Sigmundar Davíðs Kristjánssonar?
|
Til baka
|
|
Um Ingibjörgu
|